jæja ég hef nú ekki frá miklu að segja ég er nú eiginlega bara
að blogga útaf þrýstingi frá fólki..hehe
en allavega ég er búin með skólann og gekk bara ágætlega
ég
trúi því varla að ég sé búin...!!! já jú jei
síðan er stefnan
sett á lýðháskóla í Danmörku eftir áramót en ég fer ekki fyrr
en í byrjun mars svo að ég hef smá tíma til að vinna mér inn pening
og að undirbúa þetta allt saman.
núna er ég bara í vinnunni að chilla... fólk er að
missa sig í jólakortunum, endalausar fyrirspurnir um
heimilisföng.. úff. annars er ég mjög glöð að vera mætt í
vinnuna það er svo gaman
núna erum við nefnilega
svo margar ungar vegna þess að það eru margar stelpur komnar
frá akureyri til að vinna hérna í rvk um jólin.
markmiðið mitt þessi jól var að komast í kjólinn fyrir jólin en
ég sé ekki fram á það þar sem að það eru miklar kræsingar í
vinnunni hvern einasta dag
nammi namm konfekt.
en nú kveð ég í bili vonandi með meira að segja næst..hehe
Guðrún ýR: æfir sig að tala með kartöflu í hálsinum...