hæhó....hvað skal segja... ég er búin að vera mjög löt við að
blogga undanfarið.. ég hef í raun og veru ekkert sérstakt að
segja....
ég fór seinustu 3 helgar norður..já þrjár helgar!! þetta
voru líka svona seinustu helgarnar þar sem að sólborg og vildís eru
báðar að koma suður eftir jól og þá verð ég nú ekki mikið á
ferðinni norður nema þegar að við allar skellum okkur norður til að
kíkja á túttuna...
- fyrsta helgin var til að mæta sem veislustjóri í afmælið hjá
Vildísi og Túttunni.. það var alveg úber dúber mikið fjör... ég
reyndar vaknaði daginn eftir og sór að drekka aldrei
aftur...!!hehe
- ég mætti á föstudegi.. að vanda fékk ég far hjá munda á
veðramóti... ég held að hann fari að taka með sér eyrnatappa, ég á
það til að tala mikið, rosalega mikið á föstudögum vegna þess
að föstudagar eru nammidagarnir mínir
en allavega ég kom norður
til að mæta á hestamannaskemmtunina með fólkinu í sveitinni.. viti
menn ég fór bara og fékk mér nokkra öllara og endaði bara ágætlega
full en skemmti mér samt vel....þannig að þarna fór eiðurinn
minn útum gluggann...(ef maður getur sagt þetta svona).
- allt er þegar þrennt er...
ég skellti mér þetta skiptið bara
svona til að heilsa uppá stelpurnar þótt ég hafi nú mest megnið
verið með henni sólborgu minni..greyið hún situr alltaf uppi með
mig að því að hún er ekki lengur að vinna á
ábæ..!! ég nottla datt aftur í það þriðju helgina í
röð...úff..ég er bara að verða hrædd um heilsu mína
hehe ég og
túttan sátu tvær heima hjá henni að ræða framtíðarplönin, þetta var
rosalegt stuð
takk fyrir mig sigríður
við enduðum á kaffi og
síðan á barnum..þetta var allt alveg rosalega gaman
núna undanfarna daga er ég bara búin að vera í endalausum
könnunum og prófum í skólanum ásamt því að passa litla frænda minn
hann skúla þar sem að mamma hans lenti í smá
óhappi....
ég var að hugsa um að enda bloggið mitt á einu af mörgum
gullmolum skúla litla...ég vil taka það fram að hann er bara 3
ára.
skúli, amma hans og afi sitja öll við matarborðið og er að
borða kvöldmatinn...þá heyrist allt í einu í skúla:
skúli: afi, þú ert hæna...!
afi: ha, er ég hæna...
skúli: já afi þú ert hæna..er það ekki amma?
amma: jújú afi þinn er óttaleg hæna...
það líður smá stund á meðan að afi er að melta hlutina og
reyna að átta sig á því hvaðan þetta kom eiginlega...:
afi: Skúli, ég er ekki hæna...!
skúli: úss ...hænur geta ekki talað...!!
lol...ég hló sko endalaust mikið
ég gleymdi næstum því...sko hann frændi minn hann þórhallur
(sonur hans ladda) hann er með útvarpsþátt á rás 2 og einnig á
xfm...ég hvet alla endilega að hlusta á þessa steypu...ýkt
fyndin
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4337369
Guðrún ýR: það eru sko húmoristar í fjölskyldunni...